BYLTING Í ÖRYGGISMÁLUM REIÐHJÓLAFÓLKS

Hjólavesti.is selur hágæða uppblásanleg öryggisvesti með innbyggðum loftpúðum. Franska fyrirtækið Helite hefur hannað fyrsta loftpúðavestið sem tryggir öryggi reiðhjólafólks. Vestin uppfylla ströngustu öryggiskröfur og eru vottuð af Evrópusambandinu. Helite öryggisvestin hafa ekki fengist á Íslandi fyrr en nú en Hjólavesti.is er með einkaumboð hér á landi. Vestin eru því nýjung á Íslandi og kominn tími til!

Hjólum og verum örugg!

HVERNIG VIRKA HJÓLAVESTIN?
Tæknin hefur tvo skynjara: Skynjari í vestinu greinir hreyfingu hjólarans og hraða. Skynjari undir hnakknum nemur óhöpp. Við óhapp blæs loftpúðinn sjálfkrafa út. Um leið og hjólari fellur þenst loftpúðinn sjálfkrafa út á 0,08 sek. Hjólavestið er því fullblásið áður en þú nærð að blikka auga.

VERNDAR HÁLS, HRYGGJARLIÐI, MÆNU, RIFBEIN, MJAÐMAGRIND OG MIKILVÆG LÍFFÆRI
Loftpúðinn tekur höggið og ver mikilvæga hluta líkamans. Háls og bakmeiðsli eru algeng hjá reiðhjólafólki. Þessi viðkvæmi hluti líkamans er vel varinn með hálspúða sem þenst út með vestinu á 0,08 sekúndum. Hálspúðinn skorðar af höfuðið og ver háls og hálsliði.

FJÖLNOTA
Eftir tvær mínútur lekur loftið sjálfkrafa úr vestinu. Það eina sem þarf að gera er að skrúfa nýtt gashylki og vestið veitir sama öryggi og áður.

ÁBYRGÐ: Öryggisvestunum fylgir sjálfkrafa tveggja ára ábyrgð. Ef þú skráir vestið þitt HÉR hjá Helite innan þriggja mánaða frá kaupum þá lengist ábyrgðin í fjögur ár.

 

 

 

HLEÐSLA ENDIST Í 25 TÍMA
Auðvelt er að hlaða vestið. Full hleðsla tekur þrjá tíma og endist hún í 25 tíma. Líftími hnakkskynjara er 5 ár og að honum loknum má endurnýja skynjarann. 

RÚMMÁL VESTIS
Þegar vestið blæs út þenst það út af lofti, allt að 24 lítrum. Loftpúðinn veitir mikilvægum hlutum líkamans frábæra vörn: Brjósti, hálsi, baki og mjöðmum. Þessi þrjú svæði geta orðið fyrir alvarlegum skaða ef kemur til óhapps.

CE-VOTTUN
Helite öryggisvestin uppfylla ströngustu öryggiskröfur og eru með CE vottun frá ALIENOR rannsóknarstofunni sem er óháð stofnun á vegum Evrópusambandsins og sérhæfir sig í að rannsaka öryggisbúnað fyrir hestamenn (PPE).

MARGVERÐLAUNAÐ
Margar rannsóknir liggja að baki HELITE vestunum og vestið hlaut SÉCURITÉ ROUTIÉRE verðlaunin frá franska ríkinu fyrir að stuðla að auknu umferðaröryggi. Vestið hlaut einnig hin alþjóðlegu CES tækniverðlaun fyrir nýsköpun.

 

HJÓLAVESTI MEÐ LOFTPÚÐUM

Vestin henta öllum kynjum

EIGINLEIKAR LOFTPÚÐAVESTIS

ÞRÁÐLAUS TÆKNI

Einfalt og tilbúið til notkunar: ON/OFF takki kveikir og slekkur á vestinu. Vestið blæs út á ógnarhraða eða 0,08 sekúndum

CE-VOTTUN

Helite öryggisvestin uppfylla ströngustu öryggiskröfur. Vestin hafa CE vottun frá ALIENOR rannsóknarstofnuninni, sem er óháð stofnun á vegum Evrópusambandsins.

LÉTT OG þægilegt

Vestið er sportlegt og nútímalegt í hönnun. Það andar og hrindir frá sér vatni. Það svarta hefur endurskínandi rendur en hið gula er alveg endurskínandi.

25 tíma ending á hleðslu

Hver hleðsla endist í 25 tíma. Auðvelt er að hlaða vestið. Líftími hnakkskynjari er 5 ár og að honum loknum má endurnýja skynjarann. 

FJÖLNOTA

Þegar vestið hefur blásið út líða um tvær mínútur þar til loftið hefur sjálfkrafa lekið úr vestinu. Það eina sem þarf til þess að vestið veiti sama öryggi og áður er að skrúfa nýtt gashylki í.

Fjögurra ára ábyrgð

Öryggisvestunum fylgir sjálfkrafa tveggja ára ábyrgð. Ef þú skráir vestið þitt HÉR þá lengist ábyrgðin í fjögur ár.