UM OKKUR
Hjónin Tinna Dögg og Atli Rafn standa að netversluninni Hjolavesti.is.
Heilsan er okkur öllum mikilvæg og því eiga öryggismál alltaf að vera í forgangi. Hjálmar eru sem betur fer orðnir almenn og sjálfsögð vörn hjólarans, en annar öryggisbúnaður er minna notaður.
Þegar við hjónin uppgötvuðum að til væri frábært og þægilegt öryggisvesti, sérstaklega ætlað reiðhjólafólki, þá rann okkur blóðið til skyldunnar og nú er netverslunin Hjolavesti.is orðin að veruleika.
Tinna og Atli Rafn standa einnig að baki netverslunarinnar BROKK.is sem selur loftpúðavesti fyrir hestafólk.
Hafir þú áhuga á að gerast söluaðili hjólavestanna frá HELITE, hafðu þá samband á info@hjolavesti.is eða í síma 7801881.