Gashylki
20 kr.
Gashylkið fyllir vestið af lofti ef óhapp verður. Hylkið er einnota. Ef óhapp verður og vestið blæs út er nauðsynlegt að setja nýtt hylki, sömu stærðar, í vestið. Hægt er að velja á milli þriggja stærða af CO2 gashylkjum og fer það eftir stærð vestis. Til að kaupa hylki sem passar in í þitt vesti, farðu eftir stærðatöflunni. Gashylkin eru með 10 ára ábyrgð og renna aldrei út.
Ef hjólari fellur og vestið blæs út þá þarf að bíða í u.þ.b.tvær mínútur þar til loftið lekur úr vestinu. Það eina sem þarf að gera er að skrúfa nýtt gashylki og vestið gefur sama öryggi og áður. Sjá leiðbeiningar hér fyrir neðan.
Hverju seldu vesti fylgir eitt gashylki. Við mælum með að eiga eitt auka gashylki. Eingöngu má nota vottuð gashylki frá HELITE.
Við sendum frítt um allt land.
STÆRÐARTÖFLUR
Ekki vera í þykkum klæðnaði þegar mælt er. Þegar valið er á milli stærða er byrjað að miða við lengd á baki, sjá mynd. Baklengdin þrengir valið niður í tvær stærðir. Þá er farið eftir málum á bringu, mjöðmum o.s.frv.

ÖRYGGISVOTTANIR OG ÁBYRGÐ
ÖRYGGISVOTTANIR OG ÁBYRGÐ
CE VOTTUN: Helite öryggisvestin uppfylla ströngustu öryggiskröfur og eru með CE vottun frá ALIENOR rannsóknarstofunni sem er óháð stofnun á vegum Evrópusambandsins og sérhæfir sig í að rannsaka öryggisbúnað fyrir (PPE).
ÁBYRGÐ: Öryggisvestunum fylgir lágmarks tveggja ára ábyrgð.Ef þú skráir vestið innan þriggja mánaða frá kaupum þá eykst ábyrgðin um tvö ár og verður að fjögurra ára ábyrgð. Til að skrá vestið í fjögurra ára ábyrgð smelltu HÉR





