LEIÐBEININGAR
Fyrsta notkun á vesti
89.000 kr.
Sérhannað loftpúðavesti sem veitir hjólurum vernd í hjólatúrnum. Ómissandi fyrir reiðhjólafólk sem er vill vera öruggt. HELITE hjólavestið er með innbyggðan loftpúða sem veitir bestu vörn gegn meiðslum, sem völ er á fyrir reiðhjólafólk. Vestið er þægilegt, úr léttu efni sem andar og hrindir frá sér vatni. Vestið skal vera yst klæða svo það hafi rými til að blása út. Vestið eykur sýnileika en endurskin er á vestunum að framan og að aftan.
Vestið selst tilbúið til notkunar og kemur með einu gashylki, USB hleðslusnúru, hnakkskynjara og notkunarhandbók.
Skoðið endilega stærðartöfluna hér neðar á síðunni.
Við sendum frítt um allt land.
Litir: Svart / Gult endurskin
Þyngd: 1,5 kg
Ending rafhlöðu: 25 klst. Full hleðsla tekur 3 tíma
Enfalt í notkun – ON / OFF
Rúmmál loftpúða er allt að 24 lítrum
CE vottað
Fjölnota
Tveggja ára ábyrð, fjögurra ára ábyrgð ef þú skráir vestið á Helite.com
Ekki vera í þykkum klæðnaði þegar mælt er.
Þegar valið er á milli stærða er byrjað að miða við lengd á baki, sjá mynd.
Baklengdin þrengir valið niður í tvær stærðir. Þá er farið eftir málum á bringu, mjöðmum o.s.frv.

CE VOTTUN: Helite öryggisvestin uppfylla ströngustu öryggiskröfur og eru með CE vottun frá ALIENOR rannsóknarstofunni sem er óháð stofnun á vegum Evrópusambandsins og sérhæfir sig í að rannsaka öryggisbúnað fyrir (PPE).
ÁBYRGÐ: Öryggisvestunum fylgir lágmarks tveggja ára ábyrgð.Ef þú skráir vestið innan þriggja mánaða frá kaupum þá eykst ábyrgðin um tvö ár og verður að fjögurra ára ábyrgð. Til að skrá vestið í fjögurra ára ábyrgð smelltu HÉR

Ekki setja vestið í vatn eða þvottavél, það gæti eyðilagt búnaðinn.
Við mælum með því að vestið sé strokið með tusku eða svampi bleyttri í sápuvatni.
Mælt er með að vestið sé hlaðið vikulega eða eftir þörfum.
Við mælum með því að vestið og hnakkskynjarinn séu pöruð mánaðarlega.
Hnakkaskynjari sem festist á hjólið hefur 5 ára ending.